Verður kjarnorka framtíðarorkugjafi mannkynsins?
Jarðvarmi
Jarðvarmi virkar með því að vatni er dælt í jörðina á heitum
stað. Jarðvarminn hitar vatnið í gufu sem snýr túrbínu og svo er vatninu aftur dælt í jörðina. Þetta er mjög hentugt því þetta er stöðug orka sem mengar ekki og klárast ekki. Það sem gerir hana dýra er að það er erfitt að bora stóra holu djúpt ofaní jörðina og það er erfitt að hafa hana nálægt bæjum sem gerir það að verkum að sum orkan tapast á leiðinni í bæina. Þess vegna kostar oft mikið að byrja á jarðvarma og svo þarf alltaf að vera einhver að fylgjast með svo við kælum ekki jörðina. Þetta hleypir líka stundum út brennisteini og sílikoni sem er samt ekkert svo slæmt. Svo er hægt að nota sömu tækni til að hita vatn fyrir aðra hluti eins og hitun húsa. Tæknin er líka alltaf að verða betri svo við náum að beisla orku jarðarinnar betur og betur með tímanum. Jarðvarminn kemur að mestu leiti frá sundrun geislavirkra efna í kjarna jarðarinnar sem er ólíklegt að klárast á næstunni.
