Verður kjarnorka framtíðarorkugjafi mannkynsins?
Álit almennings
Þegar kjarnorka kom fyrst á sjónarmiðið var heimurinn spenntur. Þetta var nýr orkugjafi sem mengaði ekki og notaði lítið af eldneyti fyrir mikið rafmagn. Síðan komu slysin. Þau vöktu óhug manna á kjarnorku. Þessari djöfullegu orku sem er óörugg og skilur eftir sig banvæn efni sem verða ekki skaðlaus í tugþúsundir ára. Það má sjá áhrif slysana á fækkun kjarnorkuvera eftir stærstu slysin eins og nú síðast í Fukushima. Kannanir sína að fólk treystir kjarnorku meira því lengra sem liðið er frá slysum en þó er stór partur af fólki sem er enn á móti. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í Bandaríkjunnum voru um 65% sammála að kjarnorka ætti að vera notuð áfram í bandaríkjunnum og um 82% að kjarnorka sé örugg.
Eftir slysið í Fukushima hefur Japan lokað öllum kjarnorkuverum hjá sér og eru í fyrsta skipti án kjarnorku síðan 1970. Þó er líklegt að þeir fari að opna gömlu kjarnorkuverin og byrja aftur að framleiða kjarnorku. Þjóðverjar fóru sömu leið og hafa lokað átta af sínum sautján kjarnorkuverum en þeir virðast ekki hafa áhuga á að opna þau aftur.
Við gerðum könnun þar sem við spurðum fólk hvað þeim finnst um orkugjafa, þetta eru niðurstöðurnar, Íslenskar og alþjóðlegar.



